Skip to content Skip to footer
afangi

Áfangaskáli

Áfangi er gistiskáli á Auðkúluheiði og stendur við Kjalveg, 38 km norður af Hveravöllum.  Hinum megin við veginn er Blöndulónið.

Í Áfanga er glæsilega aðstaða.  Þar er svefnpokapláss fyrir 32 í kojur í 4 manna herbergjum.  Það eru sturtur og heitur pottur.

Bugaskáli

Bugaskáli er á Eyvindastaðarheiði. Gisting fyrir einstaklinga og hópa, allt að 12 svefnpokaláss. Svefnrými er eitt sameiginlegt herbergi.

Einnig er hægt að renna fyrir fiski í Aðalsmannsvatni sem er við Bugaskála

Bugaskáli
Galtará

Galtarárskáli

Galtarárskáli er gistiskáli á Eyvindarstaðaheiði og stendur við Galtará, 6 km frá Kjalvegi þegar beygt er inná Eyvindarstaðaheiði. 

Skálinn er opinn frá 15. júní – 15. ágúst.  

Ströngukvíslarskáli

Ströngukvíslarskáli er á Eyvindastaðarheiði. Gisting fyrir einstaklinga og hópa, allt að 32 svefnpokaláss. Það eru tvö herbergi, í öðru herberginu er svefnpláss fyrir 6 manns og hinu er pláss fyrir 16manns.

Ströngukvíslarskáli